Solskjær hefur rætt við Eið Smára

Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Ole Gunnar Solskjær þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Molde segist hafa rætt við Eið Smára Guðjohnsen um þann möguleika á að hann gangi í raðir félagsins.

„Viö höfum rætt við hann. Við eru áhugsamir um að fá hann til okkar og hann er það líka. Ég vona að við getum náð samkomulagi við hann,“ segir Solskjær við norska miðilinn Rbnett.

Eiður Smári er án félags en hann sagði skilið við kínverska liðið Shijiazhuang Everbright í síðasta mánuði.

„Eiður er leikmaður eins og við höfum verið að leita eftir. Hann er sigurvegari sem hefur unnið Meistaradeildina og hefur spilað með Barcelona undir stjórn Pep Guardiola. Það er klárt að það hefði mikla þýðingu fyrir okkur að fá þannig leikmann,“ segir Solskjær, sem sjálfur hefur unnið Meistaradeildina með liði Manchester United.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert