Þróttur í samstarf við Dani

Per Rud starfaði hjá Þrótti í vetur en er kominn …
Per Rud starfaði hjá Þrótti í vetur en er kominn aftur til Danmerkur. mbl.is/Jóhann

Þróttarar í Reykjavík eru á leið í samstarf með danska knattspyrnufélaginu HB Köge en Per Rud, nýráðinn íþróttastjóri HB Köge sem hefur starfað hjá Þrótti undanfarna mánuði skýrði frá þessu á vef danska félagsins í dag.

Rud tekur til starfa á morgun en danska félagið leitaði eftir kröftum hans eftir að hann hafði gengið til liðs við Þróttara fyrr í vetur.

„Við viljum vinna með Þrótti varðandi þróun ungra leikmanna, erum með áætlanir um að útvíkka samstarfið. Við munum hitta Þróttara í vor og ganga endanlega frá samningum um formlega samvinnu," sagði Per Rud.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert