Morten Beck æfir með KR

KR-ingar skoða danskan leikmann í Bandaríkjunum.
KR-ingar skoða danskan leikmann í Bandaríkjunum. Árni Sæberg

KR í Pepsi-deild karla í knattspyrnu er með danskan leikmann á reynslu hjá sér en sá heitir Morten Beck. Þetta kemur fram á vef Fótbolta.net í dag.

Beck, sem er 21 árs gamall, getur leikið í bakverði, á miðju og á kanti, en hann hefur leikið bæði með SonderjyskE og Horsens.

KR-ingar fara til Bandaríkjanna á þriðjudaginn og fer Beck með liðinu út en KR spilar þar í æfingamóti með New York FC, FC Cincinnati og HB Koge.

Félagið samdi við nafna hans, Morten Beck Andersen, á dögunum en enn kom í stað Sören Frederiksen sem fór aftur til Danmerkur og samdi við Viborg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert