Víkingur Ó. fer vel af stað

Tokic skoraði síðara mark Víkinga í dag.
Tokic skoraði síðara mark Víkinga í dag. mbl.is/Alfons

Víkingur Ó. sigraði Selfoss, 2:1, í fyrsta leik liðanna í Lengjubikar karla í knattspyrnu í dag en leikið var í Akraneshöllinni.

Staðan að loknum fyrri hálfleik var markalaus en Alfreð Már Hjaltalín kom Víkingum yfir á 63. mínutu. Hrovje Tokic kom Ólsurum í 2:0 þegar um 20 mínútur voru til leiksloka en Ragnar Þór Gunnarsson minnkaði muninn fyrir Selfyssinga á 86. mínútu. Lengra komust þeir ekki og Víkingur Ó. hafði betur, 2:1.

Liðin leika í 2. riðli A-deild­ar ásamt Fjarðabyggð, KA, Fylki og Breiðablik en tvö efstu liðin kom­ast áfram í 8-liða úr­slit. Fylkir sigraði Breiðablik í fyrsta leik riðilsins fyrr í dag, 3:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert