Almarr byrjar vel hjá KA

Srdjan Tufegdzic þjálfari og Almarr Ormarsson.
Srdjan Tufegdzic þjálfari og Almarr Ormarsson.

Almarr Ormarsson sem gekk til liðs við KA frá KR á dögunum byrjar vel með norðanönnum, en hann var á skotskónum þegar KA gjörsigraði Fjarðabyggð í riðli 2 í A deild Lengjubikars karla í knattspyrnu. 

Lokatölur í leiknum urðu 8:0 KA í vil, en þetta var fyrsti leikur liðanna í riðlakeppninni.

Almarr Ormarsson skoraði þrjú marka KA í leiknum, Hallgrímur Mar Steingrímsson tvö, Elfar Árni Aðalsteinsson og Sveinn Helgi Karlsson eitt mark hvor og eitt marka KA var sjálfsmark hjá leikmanni Fjarðabyggðar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert