Öruggur sigur Þórs í fyrsta leik

Leikmenn Þórs fagnar einu af mörkum sínum síðasta sumar.
Leikmenn Þórs fagnar einu af mörkum sínum síðasta sumar. Thorir O. Tryggvason.

Þór Akureyri vann öruggan sigur þegar liðið mætti Leikni Fáskrúðsfirði í fyrsta leik liðanna í riðli 4 í A deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í Boganum á Akureyri í dag. 

Jóhann Helgi Hannesson skoraði tvö marka Þórs, Bessi Víðisson skoraði sömuleiðis tvö mörk og eitt marka Þórs var sjálfsmark hjá leikmanni Leiknis. 

Leiknir Fáskrúðsfirði verða nýliðar í 1. deild karla næsta sumar, en þar munu þeir mæta Þór sem leikur í sömu deild. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert