Gordon skoraði þrennu í stórsigri

Leikmenn ÍBV skoruðu sex mörk í sigri sínum gegn Fylki …
Leikmenn ÍBV skoruðu sex mörk í sigri sínum gegn Fylki í dag og Shanenka Gordon skoraði þrjú þeirra. Eva Björk Ægisdóttir

Shaneka Jodian Gordon skoraði þrennu þegar ÍBV bauð í markaveislu þegar liðið mætti Fylki í fyrsta leik liðanna í A deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu. 

Lokatölur í leiknum urðu 6:2 ÍBV í vil, en Rebekah Bass skoraði tvö marka ÍBV og Cloe Lacasse eitt mark. 

Ruth Þórðar Þórðardóttir og Hulda Sigurðardóttir skoruðu mörk Fylkis í leiknum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert