Breiðablik fór illa með Þór/KA

Fanndís Friðriksdóttir skoraði tvö mörk í dag.
Fanndís Friðriksdóttir skoraði tvö mörk í dag. Styrmir Kári

Breiðablik fór létt með Þór/KA í A-deild Lengjubikars kvenna í dag, en leiknum lauk með 6:1 sigri Blika í Boganum.

Leikurinn byrjaði vel hjá heimaliðinu en Hulda Björg Hannesdóttir kom Akureyringum yfir á 12. mínútu leiksins. Blikaliðið var þó fljótt að svara markinu en Ingibjörg Sigurðardóttir jafnaði metin stuttu síðar og þá bættu þær Fanndís Friðriksdóttir og Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir við mörkum áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Fanndís skoraði fjórða markið í byrjun síðari hálfleiks og Andrea náði svo í sitt annað mark á 60. mínútu áður en Esther Rós Arnarsdóttir gulltryggði sigur Blika. Lokatölur því 6:1.

Breiðablik er í efsta sæti riðilsins með 12 stig af 12 mögulegum, en Þór/KA er í 4. sæti með 3 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert