Blikar voru betri

„Ég er ánægður með sigurinn og stigin,“ sagði Ejub Purisevic, þjálfari Víkinga frá Ólafsvík eftir 1:2 sigur á Breiðabliki í fyrstu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu.

„Ég er líka ánægður með hvernig við spiluðum í fyrri hálfleik, en síðan duttum við aðeins til baka eftir að Blikar jöfnuðu í upphafi síðari hálfleiksins. Blikar voru betri en við í kvöld en við skoruðum fleiri mörk og það er það sem skiptir máli“ sagði þjálfarinn.

Liðið skoraði tvö frábærlega falleg mörk og spurður hvort mikið hafi verið um skotæfingar hjá leikmönnum svaraði hann því neitandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert