Damir hetja Bikanna

Fylkismenn leika við Breiðablik í annarri umferð Pepsi-deildarinnar.
Fylkismenn leika við Breiðablik í annarri umferð Pepsi-deildarinnar. mbl.is/Golli /

Miðvörðurinn Damir Muminovic tryggði Breiðabliki stigin þrjú sem voru í boði í Árbænum í kvöld þegar Blikar hrósuðu 2:1 sigri gegn Fylkismönnum.

Miðvörðurinn skoraði sigurmarkið tíu  mínútum fyrir leikslok og þar með er Kópavogsliðið komið á blað í deildinni en Fylkismenn eru án stiga.

Jafnræði var með liðunum í kvöldblíðunni í Lautinni í kvöld þar sem bæði lið sýndu ágæta takta á skellóttum og frekar ósléttum velli. Arnþór Ari Atlason kom Blikum yfir á 12. Mínútu en Albert Brynjar Ingason jafnaði með stórglæsilegu á 29. Mínútu.

Það stefndi allt í þriðja 1:1 jafntefli liðanna í röð í Árbænum en miðvörðurinn sterki Damir Muminovic sá til þess að svo varð ekki.

Fylkir 1:2 Breiðablik opna loka
90. mín. Uppbótartíminn er þrjár mínútur. Það stefnir í sigur Blikanna.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert