Titilvörnin hefst í Hafnarfirði

Leikmenn Stjörnunnar fagna marki.
Leikmenn Stjörnunnar fagna marki. mbl.is/Eggert

Stjarnan hefur titilvörn sína í Borgunarbikar kvenna í knattspyrnu með heimsókn í Hafnarfjörðinn þar sem liðið mætir FH í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar en dregið var í 16-liða úrslit í hádeginu í dag.

Selfyssingar, sem höfnuðu í öðru sæti síðustu tvö ár fá Val í heimsókn.

Niðurstaða úr drættinum var eftirfarandi:

FH - Stjarnan

HK/Víkingur - Þróttur R.

KR - ÍBV

Haukar - ÍA

Selfoss - Valur

Keflavík - Breiðablik

Fylkir - Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir

Þór/KA - Grindavík

Leikirnir fara fram helgina 11.-12. júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert