Tveir fyrirliðar í leikbann

Hallur Hallsson, fyrirliði Þróttar.
Hallur Hallsson, fyrirliði Þróttar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fyrirliðar tveggja úrvalsdeildarliða karla í knattspyrnu voru úrskurðaðir í eins leiks bann á fundi aganefndar KSÍ í dag.

Hallur Hallsson, fyrirliði Þróttar, fékk rauða spjaldið í leik liðsins gegn ÍBV, fyrir að slá í punginn á Mikkel Maigaard, framherja Eyjamanna. Hann verður í banni í botnslagnum mikilvæga gegn ÍA á sunnudaginn.

Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Valsmanna, er kominn með fjögur gul spjöld í deildinni og verður því í banni þegar Valur mætir Stjörnunni á sunnudaginn.

Haukur Páll Sigurðsson fyrirliði Vals.
Haukur Páll Sigurðsson fyrirliði Vals. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert