Mæta þessum liðum ef vel fer

Atli Sigurjónsson og Arnþór Ari Atlason gætu farið til Albaníu …
Atli Sigurjónsson og Arnþór Ari Atlason gætu farið til Albaníu eða Slóvakíu. mbl.is/Golli

Dregið var í aðra umferð Evrópudeildarinnar í knattspyrnu karla í Nyon í Sviss eftir hádegi í dag. Hibernian, Grasshoppers og Partizani eða Slovan Bratislava bíða íslensku liðanna handan við hornið takist þeim vel til í fyrstu umferðinni. 

Valsmenn mætir Hibernian frá Skotlandi í annarri umferðinni takist þeim að slá út danska liðið Brøndby, KR mætir Grasshoppers frá Sviss ef þeir leggja Glenovan að velli og Breiðablik mætir annað hvort Partizani Tirana frá Albaníu eða Slovan Bratislava frá Slóvakíu ef þeir klára Jelgava frá Lettlandi í 1. umferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert