Fyrsti sigur KR í sumar

KR tekur á móti Selfossi í kvöld.
KR tekur á móti Selfossi í kvöld. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

KR vann glæsilegan 4:3 sigur á Selfossi í kvöld í Frostaskjólinu í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu og tryggði liðið þar með sér sinn fyrsta sigur í sumar.

Heimakonur í KR komu til baka úr stöðunni 1:3 og skoruðu þrjú mörk á síðustu 11 mínútum leiksins.

Lauren Elizabeth Hughes skoraði fyrstu tvö mörk Selfyssinga, fyrst á 9. mínútu og því næst þeirri 55. en mínútu áður hafði Ásdís Karen Halldórsdóttir jafnað metin fyrir KR, 2:1.

Anna María Friðgeirsdóttir bætti svo við þriðja marki Selfyssinga á 63. mínútu, breytti stöðunni í 3:1, en KR-stúlkur áttu heldur betur eftir að láta til sín taka.

Á 79. mínútu minnkaði Sigríður María Sigurðardóttir metin í 3:2 og á 85. mínútu jafnaði Ásdís Karen metin með sínu öðru marki í leiknum, 3:3. Þá virtist hausinn á Selfyssingum vera farinn þar sem Fernanda Vieira Baptista skoraði sigurmarkið aðeins mínútu síðar, 4:3, og urðu það lokatölur.

Með sigrinum fara KR-stúlkur í 5 stig og upp í 8. sætið en Selfoss hefur nú tapað þremur af síðustu fjórum leikjum, og hefur sex stigí 6. sætinu.

90. Leik lokið! KR sigrar 4:3! Magnaður viðsnúningur hjá liðinu!

86. MARK! Fernanda Vieira Baptista skorar fjórða mark KR! Er hún að tryggja liðinu fyrsta sigurinn í sumar?

85. MARK!! KR jafnar metin! Staðan er 3:3. Ásdís Karen með sitt annað mark! Þvílíkur leikur!

79. MARK! KR-ingar hafa ekki sagt sitt síðasta, Sigríður María Sigurðardóttir minnkar muninn fyrir heimastúlkur í Vesturbæ. Staðan 3:2.

63. MARK! Anna María Friðgeirsdóttir skorar þriðja mark Selfyssinga! Staðan 3:1.

55. MARK! Aðeins mínútu síðar skorar Lauren Elizabeth Hughes sitt annað mark í leiknum og kemur Selfyssingum á ný yfir, 2:1!

54. MARK! KR jafnar metin, og var þar Ásdís Karen Halldórsdóttir að verki. Staðan orðin 1:1.

45. Kominn hálfleikur.

9. MARK! Lauren Elizabeth Hughes kemur Selfossi yfir með sínu fimmta marki á tímabilinu! Staðan er 1:0.

1. Leikurinn er hafinn.

0. Byrjunarliðin eru klár:

KR Selfoss
 BYRJUNARLIÐ
29  Ingibjörg Valgeirsdóttir  (M)   12  Chante Sherese Sandiford (M)  
Sigrún Inga Ólafsdóttir  (F)   Lauren Elizabeth Hughes   
Fernanda Vieira Baptista    Bergrós Ásgeirsdóttir    
Sara Lissy Chontosh     Hrafnhildur Hauksdóttir  (F)  
Sofía Elsie Guðmundsdóttir     Anna María Friðgeirsdóttir    
11  Sigríður María S Sigurðardóttir    11  Heiðdís Sigurjónsdóttir    
12  Gabrielle Stephanie Lira    13  Brynja Valgeirsdóttir    
21  Mist Þormóðsdóttir Grönvold     14  Karitas Tómasdóttir    
22  Ásdís Karen Halldórsdóttir     17  Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir    
25  Hugrún Lilja Ólafsdóttir     18  Magdalena Anna Reimus    
27  Anna Birna Þorvarðardóttir     19  Eva Lind Elíasdóttir    
 
 VARAMENN
Hrafnhildur Agnarsdóttir  (M)   30  Friðný Fjóla Jónsdóttir  (M)  
Elísabet Guðmundsdóttir     Íris Sverrisdóttir    
13  Bjargey Sigurborg Ólafsson    Katrín Ýr Friðgeirsdóttir    
17  Jóhanna K Sigurþórsdóttir     10  Guðmunda Brynja Óladóttir    
23  Guðrún María Johnson     15  Karen Inga Bergsdóttir    
26  Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir     16  Alyssa Telang   
28  Íris Sævarsdóttir     22  Erna Guðjónsdóttir  
Guðmunda Brynja Óladóttir, fyrirliði Selfoss, mætir ásamt stöllum sínum KR …
Guðmunda Brynja Óladóttir, fyrirliði Selfoss, mætir ásamt stöllum sínum KR í kvöld. Ljósmynd/Guðmundur Karl
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert