Ísland hástökkvari á FIFA-listanum

Ísland er númer sextán á listanum.
Ísland er númer sextán á listanum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu fer upp um fjögur sæti á heimslista FIFA sem gefinn var út í morgun og hækkar sig upp í sextánda sætið frá því listinn var síðast gefinn út.

Sviss og Ísland eru þær tvær þjóðir sem taka stærstu stökkin á listanum sem annars breytist mjög lítið frá því síðast. Ísland er komið í 16. sætið en var í 20. sæti og Sviss fer úr nítjánda sætinu í það fimmtánda.

Ísland fer upp fyrir Danmörku, Suður-Kóreu, Nýja-Sjáland og Ítalíu á listanum en það eru sigrarnir á Skotlandi og Makedóníu í undankeppni EM sem fleyta liðinu upp að þessu sinni.

Ísland er í níunda sæti af Evrópuþjóðum á listanum en var áður í ellefta sæti innan álfunnar.

Bestu kvennalandsliðs heims í dag samkvæmt listanum eru eftirtalin:

1. Bandaríkin
2. Þýskaland
3. Frakkland
4. England
5. Ástralía
6. Svíþjóð
7. Japan
8. Brasilía
9. Norður-Kórea
10. Kanada
11. Noregur
12. Kína
13. Holland
14. Spánn
15. Sviss
16. ÍSLAND
17. Nýja-Sjáland
18. Ítalía
19. Suður-Kórea
20. Danmörk
21. Skotland
22. Rússland
23. Úkraína
24. Kólumbía
25. Austurríki

Heimslisti FIFA í heild sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert