Þór/KA vann afar öruggan 4:0 sigur á FH þegar liðin mættust í fimmtu umferð Pepsi-deildar kvenna. Þór/KA fór þar með upp yfir FH í þriðja sæti deildarinnar með átta stig en FH er í fimmta sæti með sjö stig.
Staðan í hálfleik var 1:0 en gestirnir að norðan sýndu allar sínar bestu hliðar í seinni hálfleik og unnu afar öruggan sigur.
Fimmtu umferðinni lýkur með stórleik Vals og Stjörnunnar sem verður í beinni lýsingu á mbl.is klukkan 16:00 í dag, laugardag.
Ítarlegri leiklýsingu, byggða á upplýsingum frá fotbolti.net má finna að neðan.
FH | 0:4 | Þór/KA | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Leik lokið | ||||
Augnablik — sæki gögn... |