Naumur sigur Breiðabliks í Árbænum

Esther Rós Arnarsdóttir úr Breiðabliki á fullri ferð í leiknum …
Esther Rós Arnarsdóttir úr Breiðabliki á fullri ferð í leiknum í dag en hún skoraði sigurmarkið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Breiðablik situr á toppi Pepsi-deildar kvenna, í bili a.m.k. eftir nauman baráttusigur gegn Fylki í dag. Lokatölur urðu 1:0 fyrir Breiðablik og Íslandsmeistararnir eru enn taplausir í deildinni.

Esther Rós Arnarsdóttir skoraði sigurmarkið í seinni hálfleik eftir undirbúning Fanndísar Friðriksdóttur og Svövu Rósar Guðmundsdóttur.

Fimmtu umferðinni lýkur með stórleik Vals og Stjörnunnar sem verður í beinni lýsingu á mbl.is. 

Fylkir 0:1 Breiðablik opna loka
90. mín. Leik lokið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert