Gunnhildur Yrsa tryggði Stabæk þrjú stig

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir voru í eldlínunni í …
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir voru í eldlínunni í dag. mbl.is/Styrmir Kári

Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skoraði eina mark leiksins þegar Stabæk sigraði Trondheims-Ørn 1:0 í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Þetta var þriðja mark Gunnhildar í deildinni.

Stabæk er í þriðja sæti deildarinnar með 25 stig að loknum 12 leikjum.

Hólmfríður Magnúsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir léku báðar allan leikinn með Avaldsnes sem burstaði Urædd 6:0. Hvorug þeirra náði að skora í dag en Avaldsnes situr á toppi deildarinnar með 31 stig eftir 12 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert