Ondo kemur ekki austur

Gilles Mbang Ondo skoraði grimmt fyrir Grindavík á sínum tíma.
Gilles Mbang Ondo skoraði grimmt fyrir Grindavík á sínum tíma. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gilles Mbang Ondo, knattspyrnumaður frá Gabon og markakóngur úrvalsdeildarinnar 2010 þegar hann lék með Grindavík, kemur ekki til 1. deildar liðs Fjarðabyggðar eins og til stóð.

Fótbolti.net skýrði frá því í gærkvöld að hann hefði verið búinn að semja við Austfjarðafélagið en vandamál með vegabréf og leikheimild hefðu leitt til þess að ekkert varð af komu hans austur. Ondo skoraði 14 mörk fyrir Grindavík í úrvalsdeildinni 2010. Hann hefur leikið í Noregi, Líbanon, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Óman undanfarin ár. Loic Ondo, bróðir hans, leikur með Fjarðabyggð.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert