Bjarni hættur með ÍBV

Sigurmark Alberts Brynjars Ingasonar fyrir Fylki gegn ÍBV í síðustu …
Sigurmark Alberts Brynjars Ingasonar fyrir Fylki gegn ÍBV í síðustu umferð hefur líklega átt ríkan þátt í ákvörðun Bjarna Jóhannssonar. mbl.is/Sigfús Gunnar

Knattspyrnuráð karlaliðs ÍBV í knattspyrnu og Bjarni Jóhannsson, sem þjálfað hefur meistaraflokk karla hjá félaginu á yfirstandandi leiktíð, hafa komist að samkomulagi um starfslok Bjarna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem ÍBV sendi frá sér í dag. 

Fram kemur í yfirlýsingunni að starfslokin hafi verið að ósk Bjarna. Enn fremur kemur fram í yfirlýsingunni að Alfreð Elías Jóhannsson, sem verið hefur aðstoðarþjálfari Bjarna á tímabilinu og Ian David Jeffs, þjálfari kvennaliðs ÍBV, munu taka við stjórn liðsins fyrst um sinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert