KA skrefi nær Pepsi-deildinni

Guðmann Þórisson og félagar mæta Leikni.
Guðmann Þórisson og félagar mæta Leikni. Árni Sæberg

Tveimur leikjum var að ljúka í 1. deild karla í knattspyrnu en KA vann Leikni R. 3:1 á meðan Þór sigraði Hugin 2:1. KA er skrefi nær því að komast í Pepsi-deild karla, en fimm umferðir eru eftir af mótinu.

KA sigraði Leikni 3:1. KA komst þremur mörkum yfir á skömmum tíma. Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði fyrst á 16. mínútu áður en hann bætti við öðru marki úr vítaspyrnu tveimur mínútum síðar. Juraj Grizelj bætti við þriðja markinu á 25. mínútu og þar við sat í hálfleik.

Atli Arnarson minnkaði muninn fyrir Leikni á 55. mínútu en lengra komst Leiknisliðið ekki og 3:1 sigur KA staðreynd. KA er í 2. sæti deildarinnar með 36 stig eftir sautján umferðir en liðið er með tíu stiga forskot á Keflavík sem er í þriðja sætinu.

Þór vann þá Hugin 2:1 í fjörugum leik. Ármann Pétur Ævarsson kom Þórsurum yfir á 10. mínútu en Huginn missti svo tvo leikmenn af velli nokkrum mínútum síðar. Orri Sveinn Stefánsson fékk að líta rautt spjald á 18. mínútu áður en Elmar Bragi Einarsson fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt fimm mínútum síðar.

Guðmundur Óli Steingrímsson fékk rautt spjald í liði Þórsara á 54. mínútu áður en Marko Nikolic jafnaði metin úr vítaspyrnu fyrir Huginn. Gunnar Örvar Stefánsson tryggði þó Þór sigurinn á 79. mínútu með marki úr vítaspyrnu og lokatölur því 2:1 fyrir Þór.

Þór er í 4. sæti deildarinnar með 26 stig og á lítinn möguleika á því að komast upp um deild en Huginn berst fyrir lífi sínu í deildinni. Liðið er í 11. sæti með 16 stig.

Huginn 1:2 Þór

KA 3:1 Leiknir R. 

Fylgst verður með gangi mála hér á mbl.is.

Upplýsingar eru fengnar af úrslitaþjónustu Úrslit.net.

79. MAAAARK!!! Huginn 1:2 Þór. Gunnar Örvar Stefánsson kemur Þór yfir. Mark úr vítaspyrnu.

61. MAAAAARK!! Huginn 1:1 Þór. Marko Nikolic skorar úr víti fyrir Hugin. 

55. MAAAAAARK!!! KA 3:1 Leiknir R. Atli Arnarson er að minnka muninn fyrir Leikni. Það er kannski ekki of seint?

54. RAUTT SPJALD!! Huginn 0:1 Þór. Guðmundur Óli Steingrímsson fær að líta rautt spjald. Þrjú rauð spjöld í þessum leik!

46. Síðari hálfleikur er hafinn.

Hálfleikur.

25. MAARK!! KA 3:0 Leiknir R. Juraj Grizelj skorar þriðja mark KA.

23. RAUTT SPJALD!! Huginn 0:1 Þór. Elmar Bragi Einarsson fær að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt.

18. RAUTT SPJALD! Huginn 0:1 Þór. Orri Sveinn Stefánsson fær rautt spjald.

18. MAAARK!! KA 2:0 Leiknir R. Hallgrímur Mar skorar úr víti.

16. MAAARK!! KA 1:0 Leiknir R. Hallgrímur Mar Steingrímsson að koma KA yfir.

10. MAAARK!! Huginn 0:1 Þór. Ármann Pétur Ævarsson er að koma Þórsurum yfir snemma leiks.

1. Leikirnir eru komnir af stað.

0. Lýsingin verður uppfærð jafn óðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert