Ellefu mörk í síðustu tveimur leikjum

Ljósmynd úr leik liðanna í kvöld.
Ljósmynd úr leik liðanna í kvöld. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Valur vann öruggan 4:0 sigur þegar liðið mætti Þrótti Reykjavík í 16. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu á Þróttarvelli í kvöld. Kristinn Freyr Sigurðsson skoraði tvö marka Vals og Andri Adolphsson og Kristinn Ingi Halldórsson eitt mark hvor. 

Valur er í fimmta sæti deildarinnar með 25 stig á meðan Þróttur situr á botni deildarinnar með átta stig og er níu stigum frá ÍBV sem er í næsta sæti fyrir ofan fallsæti þegar sex umferðir eru eftir. 

Þróttur 0:4 Valur opna loka
90. mín. Aron Lloyd Green (Þróttur) fær gult spjald
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert