„Þetta er fínn dagur“

Kristinn Freyr á miðri mynd í leiknum í kvöld.
Kristinn Freyr á miðri mynd í leiknum í kvöld. mbl.is/Þórður

„Við héldum hreinu. Skoruðum fjögur og fengum þrjú stig. Þetta er fínn dagur,“ sagði Kristinn Freyr Sigurðsson við mbl.is í Laugardalnum í kvöld. 

Kristinn skoraði tvívegis þegar Valur sigraði Þrótt 4:0 í 16. umferð Pepsí-deildar karla. 

„Þótt Þróttarar séu í þeirri stöðu sem þeir eru í þá eru þeir með flott lið. Þeir áttu margar skyndisóknir á okkur en sem betur fer varði Toni nokkrar vörslur mjög vel,“ sagði Kristinn en benti einnig á að Valsmenn hefðu líka fengið sinn skammt af marktækifærum enda um opinn leik að ræða. 

„Hlutirnir eru að detta fyrir okkur í augnablikinu en ekki má gleyma því að við fengum fleiri færi sem við hefðum getað klárað, fyrir utan mörkin fjögur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert