Blikastelpur örugglega í 32-liða úrslit

Breiðablik mætir Cardiff í dag.
Breiðablik mætir Cardiff í dag. Styrmir Kári

Breiðablik slátraði Cardiff Metalist 8:0 í lokaleik riðils 3 í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í dag en leikið var í Wales. Breiðablik er komið áfram í 32-liða úrslit keppninnar.

Sigur Blika var aldrei í hættu í dag. Liðið var sex mörkum yfir í hálfleik. Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði fyrstu tvö mörkin áður en Rakel Hönnudóttir bætti við þriðja.

Berglind Björg Þorvalsdóttir fiskaði vítaspyrnu eftir hálftímaleik og var það Fanndís Friðriksdóttir sem skoraði úr vítinu. Berglind Björg og Rakel bættu svo við tveimur til viðbótar undir lok síðari hálfleiks.

Tvö mörk voru skoruð í þeim síðari en það gerðu þær Málfríður Erna Sigurðardóttir og Esther Rós Arnardóttir á 82. og 85. mínútu. Lokatölur því 8:0 fyrir Blikum sem unnu riðilinn með 7 stig.

Þær eru því komnar áfram í 32-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.

Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Leik lokið.

85. MAAARK!! Esther Rós Arnardóttir skorar áttunda markið og lokar þessum leik endanlega eftir hornspyrnu frá Hallberu.

82. MAAARK!! Málfríður Erna Sigurðardóttir bætir við sjöunda markinu. Esther Rós Arnardóttir á stoðsendinguna.

46. Síðari hálfleikur er hafinn.

Hálfleikur.

34. MAAARK!! Rakel Hönnudóttir að bæta við sjötta markinu. Hallbera á stoðsendinguna.

30. MAAARK!! Berglind Björg að bæta við fimmta marki Blika. Þetta er alltof auðvelt hjá þeim.

26. MAAARK!! Fanndís skorar úr vítinu. 4:0 takk fyrir!!

25. VÍTI!! Breiðablik fær vítaspyrnu. Berglind Björg Þorvaldsdóttir er felld innan teigs og víti dæmt.

21. MAAARK!! Rakel Hönnudóttir bætir við þriðja marki Blika. Þær eru að klára þetta í fyrri hálfleik.

14. MAAARK!! Það er sama uppskrift. Svava Rós skorar eftir sendingu frá Fanndísi. Blikar nálgast 32-liða úrslitin!

10. MAAARK!!! Svava Rós Guðmundsdóttir að koma Blikum yfir snemma leiks. Fanndís Friðriksdóttir átti stoðsendinguna. Þvílík byrjun!

1. Leikurinn er hafinn. 

0. Lýsingin verður uppfærð hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert