Fimm leikir í Pepsi-deildinni

Kristinn Freyr Sigurðsson og félagar hans í Val taka á …
Kristinn Freyr Sigurðsson og félagar hans í Val taka á móti KR í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

17. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu lýkur í dag með fimm leikjum en umferðin hófst í gær með viðureign Breiðabliks og Stjörnunnar þar sem Blikar höfðu betur, 2:1.

Með sigrinum minnkaði Breiðablik forskot FH-inga í toppsætinu niður í 4 stig en FH-ingar geta náð aftur sjö stiga forskoti nái þeir að vinna sigur á Víkingi í Ólafsvík.

Leikirnir eru:

17.00 ÍBV - Þróttur
18.00 Víkingur Ó - FH
18. 00 ÍA - Víkingur
18.00 Fjölnir - Fylkir
20.00 Valur - KR

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert