Galatasaray vill fá Kolbein

Kolbeinn Sigþórsson.
Kolbeinn Sigþórsson. AFP

Franska íþróttablaðið L’Équipe greinir frá því á vef sínum að tyrkneska félagið Galatasaray sé í viðræðum við franska félagið Nantes um að fá landsliðsmanninn Kolbein Sigþórsson til liðs við sig.

Samkvæmt heimildum L’Équipe er Galatasaray í viðræðum við Nantes um að fá Kolbein að láni með möguleika á að semja svo við hann til framtíðar.

Kolbeinn er á öðru ári sínu hjá Nantes en hann kom til liðsins við hollenska félaginu Ajax. Hann skoraði 3 mörk í 26 leikjum með Nantes í frönsku deildinni á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert