Rúnar Alex í liði vikunnar

Rúnar Alex Rúnarsson.
Rúnar Alex Rúnarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður Nordsjælland og U21 árs landsliðsins, er í liði vikunnar hjá danska blaðinu Tipsbladet.

Rúnar Alex átti mjög góðan leik á milli stanganna þegar Nordsjælland bar sigurorð af Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni á föstudagskvöldið. Rúnar varði nokkrum sinnum meistaralega en hann hefur leikið alla sjö leiki liðsins í deildinni á tímabilinu.

Rúnar Alex er í U21 árs landsliðshópnum sem mætir Norður-Írum og Frökkum á útivelli í undankeppni EM sem fram fer í byrjun næsta mánaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert