Úkraínumenn hafa hafið undirbúninginn fyrir leikinn gegn Íslendingum í undankeppni heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu en þjóðirnar eigast við fyrir luktum dyrum í fyrstu umferð riðlakeppninnar á NSK Olimpiyskyi-leikvanginum í Kiev á mánudagskvöldið.
Andriy Shevchenko var ráðinn þjálfari úkraínska landsliðsins eftir EM í Frakklandi í sumar. Schevchenko var aðstoðarmaður Mykhaylo Fomenko en hann ákvað að hætta eftir EM þar sem Úkraínumenn töpuðu öllum þremur leikjum sínum, gegn Þjóðverjum, Pólverjum og Norður-Írum, og skoruðu ekki mark.
„Við sáum öll hvernig íslenska landsliðið leit út á Evrópumótinu svo við þurfum ekkert að kynna þetta lið frekar. Íslenska liðið er mjög gott og heilsteypt lið sem veit hvernig á að verjast og að nýta sér föstu leikatriðin. Það skorar mikið af mörkum með þeim hætti,“ sagði Shevchenko á vef úkraínska knattspyrnusambandsins.
Shevchenko er einn þekktasti og besti knattspyrnumaður Úkraínu frá upphafi en hann lék 111 leiki með landsliðinu og skoraði í þeim 48 mörk. Hann lék með Dynamo Kiev, AC Milan og Chelsea. Hann lagði skóna á hilluna árið 2012.
Shevchenko hefur þurft að gera eina breytingu á hópnum sem hann valdi fyrir leikinn. Yevhen Khacheridi úr Dynamo Kiev er meiddur og hefur hann valið samherja hans, Mykola Morozyuk, í staðinn.