Uppselt á leikinn gegn Finnum

Íslenskir áhorfendur á leik liðsins gegn Frakklandi í átta liða …
Íslenskir áhorfendur á leik liðsins gegn Frakklandi í átta liða úrslitum á EM 2016. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Uppselt er á leik Íslands og Finnlands sem háður verður á Laugardalsvellinum 6. október, en leikurinn er liður í undankeppni HM í knattspyrnu karla sem fram fer í Rússlandi árið 2018. Miðasala hófst á midi.is kl. 12.00 í dag, miðvikudag, eins og kynnt var á vef KSÍ í vikunni. Alls fóru um 3.000 miðar í sölu í dag og seldust þeir upp á rúmum þremur tímum.

Finnar tóku alla þá miða sem þeim stóð til boða og verða því nokkuð fjölmennir á Laugardalsvellinum, 6. október næstkomandi.  Sala mótsmiða fór fram fyrr í mánuðinum og seldust allir þeir miðar sem stóðu til boða. Alls seldust um 1.800 mótsmiðar að þessu sinni en um 1.000 mótsmiðar seldust á síðustu undankeppni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert