Rúnar í tveggja leikja bann

Rúnar Páll Sigmundsson
Rúnar Páll Sigmundsson mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari karlaliðs Stjörnunnar, fær ekki að stýra sínum mönnum í næstu tveimur leikjum en hann var úrskurðaður í tveggja leikja bann á fundi Aga- og úrskurðarnefndar KSÍ í gær.

Rúnari var vikið af bekknum í tapi Stjörnunnar á móti Val í Pepsi-deildinni á sunnudaginn og var það í annað sinn sem hann fær reisupassann á tímabilinu. Rúnar verður því ekki á bekknum þegar Stjarnan sækir ÍBV heim á morgun og verður heldur ekki til staðar þegar Stjarnan fær ÍA í heimsókn á mánudaginn.

Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Vals, var úrskurðaður í eins leiks bann og missir af leik sinna manna á móti FH á sunnudaginn.

Tveir leikmenn Víkings Ólafsvíkur voru úrskurðaðir í bann. Emir Dokara fékk tveggja leikja bann og missir af leikjunum á móti Víkingi og Þrótti og  Aleix Egea tekur bann sitt út í leiknum á móti Þrótti á mánudaginn. Auk þess verður aðstoðarþjálfarinn Dzevad Saric í banni á móti Víkingi á morgun.

Þá verður Hallur Hallsson, fyrirliði Þróttar, í leikbanni í leiknum við Víking Ólafsvík á mánudaginn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert