Ætla sér beint aftur upp

Gregg Oliver Ryder.
Gregg Oliver Ryder. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

„Það sem er jákvætt við leik okkar í dag er að við sýndum baráttuvilja og ástríðu. Við vorum þegar fallnir en vildum samt standa okkur í stykkinu. Mér fannst við gera það, sérstaklega í seinni hálfleik," segir Gregg Oliver Ryder, þjálfari Þróttara, eftir 2:2 jafntefli við Fylki í Árbænum. 

„Við vissum að þetta sumar yrði erfitt og það kom á daginn. Við þurfum að horfa til baka og læra af mistökunum sem við höfum gert,“ segir Ryder.

„Við þurfum einnig að halda sama mannskap og eftir að hafa rætt við leikmennina held ég að okkur takist það. Við ætlum okkur að fara beint aftur upp.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert