Veigar Páll semur við FH-inga

Veigar Páll skrifar undir samninginn við FH. Með honum á …
Veigar Páll skrifar undir samninginn við FH. Með honum á myndinni eru Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, og Ólafur Páll Snorrason aðstoðarþjálfari. mbl.is/Andri Yrkill

Veigar Páll Gunnarsson er genginn í raðir Íslandsmeistara FH en hann skrifaði undir eins árs samning við Hafnarfjarðarliðið.

Veigar Páll er 36 ára gamall og kemur til FH-inga frá uppeldisfélaginu sínu, Stjörnunni. Hann tók þátt í 17 leikjum í Pepsi-deildinni á liðnu tímabili og skoraði fimm mörk, en hann hefur skorað sextán mörk í deildinni á þeim fjórum árum síðan hann sneri heim úr atvinnumennsku.

Veigar Páll lék erlendis með norsku liðunum Strømsgodset, Stabæk og Vålerenga auk þess sem hann reyndi fyrir sér með franska liðinu Nancy. Hér heima hefur hann aðeins leikið með Stjörnunni og KR. Hann fékk ekki framlengingu á samningi sínum í Garðabænum eftir tímabilið og hefur því nú söðlað um yfir í Hafnarfjörðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert