Aron Bjarki í KR næstu þrjú árin

Aron Bjarki Jósepsson í baráttunni við nafna sinn Aron Bjarnason …
Aron Bjarki Jósepsson í baráttunni við nafna sinn Aron Bjarnason hjá ÍBV á tímabilinu. mbl.is/Árni Sæberg

Varnarmaðurinn Aron Bjarki Jósepsson skrifaði í dag undir nýjan þriggja ára samning við úrvalsdeildarfélagið KR í knattspyrnu.

Samningur Arons rann út á dögunum en hann staðfesti fréttirnar sjálfur á Twitter í dag. Aron er 26 ára gamall og er uppalinn hjá Völsungi frá Húsavík en Aron hefur leikið með KR frá árinu 2011.

Aron lék 15 leiki fyrir KR á tímabilinu og öðlaðist endurnýjun lífdaga í liði KR eftir að Willum Þór Þórsson tók við liðinu en KR náði eins og frægt er orðið Evrópusæti eftir hreint út sagt magnaðan endasprett í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert