Mörkin og tilþrifin í leik Íslands og Kína – myndskeið

Íslenska kvennalandsliðið gerði jafntefli við Kína í dag.
Íslenska kvennalandsliðið gerði jafntefli við Kína í dag. mbl.is/Golli

Ísland og Kína gerðu 2:2 jafntefli í fyrsta leik þjóðanna á fjögurra þjóða móti sem hófst í dag í Chongqing-héraði í Kína.

Sjá frétt mbl.is: Katrín tryggði jafntefli gegn Kína

Fanndís Friðriksdóttir kom Íslandi yfir strax í upphafi leiks og átti svo meðal annars skalla í þverslá. Kínverjar svöruðu með tveimur mörkum eftir hlé en það var Katrín Ásbjörnsdóttir sem tryggði Íslandi jafntefli með marki skömmu fyrir lok leiksins.

Öll mörkin og tilþrifin má sjá hér að neðan.

Fanndís kemur Íslandi yfir:

Fanndís skallar í þverslá eftir innkast Sifjar Atladóttur:

Kína jafnar á 53. mínútu:

Kína kemst yfir á 81. mínútu:

Katrín Ásbjörnsdóttir jafnar metin og tryggir Íslandi stig:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert