Steinþór frá Noregi til KA

Steinþór Freyr Þorsteinsson í leik með Sandnes Ulf.
Steinþór Freyr Þorsteinsson í leik með Sandnes Ulf. Ljósmynd/sandnesulf.no

Steinþór Freyr Þorsteinsson, leikmaður Sandnes Ulf í Noregi, hefur ákveðið að söðla um og skrifaði í dag undir tveggja ára samning við KA. Þetta kemur fram á heimasíðu KA.

Steinþór Freyr er samningsbundinn Viking Stavanger en er á láni frá þeim hjá Sandnes Ulf. Samningur Steinþórs við Viking rennur út um áramótin og mun hann þá flytjast búferlum til Akureyrar.

Steinþór er fæddur árið 1985 og er uppalinn hjá Breiðablik í Kópavogi þar sem hann hóf að leika með meistaraflokki aðeins 17 ára gamall. Árið 2009 gekk hann til liðs við Stjörnuna og sló þar í gegn og var valinn í A-landslið Íslands sama ár. Steinþór hefur leikið 8 landsleiki fyrir Ísland og fjölmarga yngrilandsliðsleiki. 

Eftir tvö ár hjá Stjörnunni var Steinþór keyptur til Örgryte í Svíþjóð en félagið varð gjaldþrota snemma árs árið 2011. Þá gekk hann til liðs við Sandnes Ulf þar sem hann lék 82 leiki með þeim í tveimur efstu deildunum og skoraði 13 mörk og hjálpaði til við að koma liðinu í deild þeirra bestu árið 2011.

Eftir tímabilið 2013 gekk hann til liðs við Viking og lék með þeim 49 úrvalsdeildarleiki og skoraði 5 mörk. Hann var lánaður til Sandnes aftur fyrir þetta tímabil sem er að klárast í Noregi. Á þessari leiktíð hefur Steinþór leikið 22 leiki og skorað 1 mark og gefið 4 stoðsendingar.

Steinþór er kantmaður og getur leikið flestar stöður framarlega á vellinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert