Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í knattspyrnu, og aðstoðarmaður hans, Brynjar Björn Gunnarsson, hafa framlengt samninga sína við Garðabæjarfélagið. Twitter-síða Stjörnunnar greinir frá þessu.
Með þeim í þjálfarateyminu verða áfram þeir Davíð Snorri Jónasson og Fjalar Þorgeirsson. Stjörnumenn höfnuðu í öðru sæti í Pepsi-deildinni á nýafstaðinni leiktíð en Stjarnan varð Íslandsmeistari undir stjórn þeirra Rúnars Páls og Brynjars fyrir tveimur árum.