Blikar lána Ástu í Fylki

Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir í Fylkistreyjunni.
Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir í Fylkistreyjunni. Heimasíða Fylkis

Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir, markvörður Breiðabliks í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu, gerði í dag lánssamning við Fylki út næsta tímabil. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fylki.

Ásta, sem er fædd árið 1996, er uppalin í Fjölni, en hún lék með ÍA í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili á láni frá Breiðablik.

Hún á 28 leiki að baki í Pepsi-deildinni en 26 af þeim eru með ÍA og 2 með Blikum. Hún mun leika áfram í deildinni á næsta tímabili en hún gerði lánssamning við Fylki út næsta tímabil.

Fylkir hafnaði í 8. sæti deildarinnar á síðasta ári með 14 stig, aðeins einu stigi meira en Selfoss sem féll.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert