Knattspyrnudeild Vals tilkynnti í kvöld að Elísa Viðarsdóttir væri búin að framlengja samning sinn við félagið. Samningurinn gildir út næstu leiktíð.
Elísa, sem er uppalin í ÍBV, kom til Vals fyrir síðustu leiktíð eftir að hafa leikið með Kristianstad í Svíþjóð tvö tímabil á undan, en hún lék 18 leiki fyrir Val sem hafnaði í 3. sæti deildarinnar í sumar.
Hún hefur þá átt fast sæti í byrjunarliði íslenska A-landsliðsins en hún á 31 leik að baki fyrir liðið en það leikur á Evrópumótinu í Hollandi á næsta ári.
„Umgjörðin hér, klúbburinn, hópurinn og nýtt og spennandi þjálfarateymi er jákvætt. Mér finnst við sem hópur eiga mikið inni eftir síðasta tímabil og hef mikla trú á því að við getum gert góða hluti á næsta tímabili,“ sagði Elísa við heimasíðu Vals.