Skrifað undir í Grindavík

Andri Rúnar Bjarnason fagnar marki fyrir Grindavík í 1. deildinni …
Andri Rúnar Bjarnason fagnar marki fyrir Grindavík í 1. deildinni í sumar. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Knattspyrnudeild Grindavíkur skrifaði á laugardag undir eins árs samning við Andra Rúnar Bjarnason, Magnús Björgvinsson og Matthías Örn Friðriksson.

Andri skiptir til Grindavíkur frá Víkingi R. en hann var í láni hjá Grindvíkingum á síðasta tímabili og skoraði 7 mörk fyrir þá í 17 leikjum í 1. deildinni.

Þeir Magnús og Matthías framlengja samninga sína um eitt ár en Matthías hefur leikið með Grindavík frá 2010 og Magnús frá 2011. Grindavík verður nýliði í efstu deild karla í knattspyrnu næsta sumar en liðið leikur á ný í deild þeirra bestu eftir fimm ára fjarveru þaðan.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert