Orri framlengir við Fram

Orri Gunnarsson í leik gegn HK.
Orri Gunnarsson í leik gegn HK. Eggert Jóhannesson

Orri Gunnarsson, leikmaður Fram, framlengdi í dag samning sinn til næstu tveggja ára en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Orri, sem er 24 ára gamall, er uppalinn í Fram en hann lék upp alla yngri flokka áður en hann hóf að leika með meistaraflokknum.

Hann hefur spilað 95 leiki fyrir félagið og gert 11 mörk bæði í bikar- og deildarleikjum en samningur hans rann út eftir tímabilið í sumar.

Orri tók sér ágætistíma til að hugsa næsta skref en hann hefur nú ákveðið að taka slaginn næstu tvö árin með félaginu.

Liðið leikur í 1. deildinni en Ásmundur Arnarsson er þjálfari liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert