Einar Karl með sigurmark Vals

Einar Karl Ingvarsson reyndist hetja Valsmanna.
Einar Karl Ingvarsson reyndist hetja Valsmanna. mbl.is/Golli

Einar Karl Ingvarsson tryggði Valsmönnum sigur á Þrótti, 3:2, í B-riðli Reykjavíkurmóts karla í knattspyrnu í Egilshöllinni í kvöld.

Þróttarar komust tvisvar yfir í fyrri hálfleik, Brynjar Jónasson skoraði og Valsmenn gerðu sjálfsmark, en Nikolaj Hansen jafnaði í tvígang og staðan var 2:2 í hálfleik. Einar Karl skoraði síðan sigurmarkið um miðjan síðari hálfleik, með góðu skoti utan teigs.

Fjölnir vann Leikni R., 1:0, í sama riðli en þar skoraði Þórir Guðjónsson sigurmarkið á 13. mínútu.

* Fréttin var leiðrétt en á leikskýrslu í gærkvöld var skráð að Sveinn Aron Guðjohnsen hefði skorað sigurmarkið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert