Blikar selja Alfons til Svíþjóðar

Alex Freyr Hilmarsson og Alfons Sampsted í leik Víkings og …
Alex Freyr Hilmarsson og Alfons Sampsted í leik Víkings og Breiðabliks í sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Breiðablik hefur samþykkt tilboð frá sænska úrvalsdeildarfélaginu Norrköping í bakvörðinn unga Alfons Sampsted. Þetta kemur fram á blikar.is, en Alfons hefur þegar skrifað undir samning við Svíana og heldur utan til æfinga með liðinu á sunnudaginn.

Alfons sem er 18 ára gamall hefur staðið sig einstaklega vel með Blikaliðinu undanfarin misseri. Hann spilaði 17 leiki í Pepsí-deildinni í sumar, en árið þar á undan lék hann sem lánsmaður með Þór í 1. deildinni og spilaði þar 9 leiki.

Alfons hefur leikið 25 landsleiki með U-17 og U-19 ára  landsliðum Íslands og var nýlega valinn til æfinga með U-21 ára landsliði Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert