Úrslitin ráðast á Reykjavíkurmótinu

Valsmaðurinn Sigurður Egill Lárusson og Fjölnismaðurinn Hans Viktor Guðmundsson.
Valsmaðurinn Sigurður Egill Lárusson og Fjölnismaðurinn Hans Viktor Guðmundsson. mbl.is/Árni Sæberg

Valur og Fjölnir leika til úrslita á Reykjavíkurmóti karla í knattspyrnu í Egilshöllinni í kvöld en flautað verður til leiks klukkan 19.

Valur hafði betur gegn Víkingi í undanúrslitunum þar sem Valsmenn höfðu betur í vítaspyrnukeppni en Fjölnismenn skelltu KR-ingum, 3:0.

Þetta er annað árið í röð sem Valsmenn leika til úrslita en þeir töpuðu á móti Leiknismönnum í fyrra, 4:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert