Annar fyrrum KR-ingur í dönsku B-deildina

Denis Fazlagic í leik gegn Íslandsmeisturum FH á síðustu leiktíð.
Denis Fazlagic í leik gegn Íslandsmeisturum FH á síðustu leiktíð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Danski knattspyrnumaðurinn Denis Fazlagic sem lék með KR-ingum á síðustu leiktíð er genginn í raðir danska B-deildarliðsins Fredericia og spilar með liðinu út tímabilið.

Fazlagic, sem er eldfljótur kantmaður, lék alla 22 leiki KR-inga í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim tvö mörk. Hjá Fredericia hittir Fazlagic fyrir framherjann Morten Beck Andersen sem einnig lék með KR á síðustu leiktíð en Andersen skoraði 6 mörk í 21 leik með KR í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð. Hann gekk til liðs við Fredericia í byrjun þessa mánaðar.

Fredericia er í bullandi fallbaráttu en liðið er í 10. sæti af 12 liðum í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert