Hafþór kominn í Selfoss

Hafþór Þrastarson í leik með Fram.
Hafþór Þrastarson í leik með Fram. mbl.is/Árni Sæberg

Knattspyrnumaðurinn Hafþór Þrastarson hefur gengið til liðs við Selfoss og mun hann spila með liðinu í Inkasso-deildinni í sumar. 

Hafþór lék með Fram síðasta sumar og á hann einnig leiki með Fjarðabyggð, Haukum, FH og KA. Hafþór kann greinilega vel við sig á Selfossi, þar sem hann lék sex leiki árið 2012 er hann var í láni frá FH. 

„Hafþór er gríðarlega hraður og agressívur leikmaður en einnig sterkur leiðtogi sem kemur til með að styrkja hópinn innan sem utan vallar," segir á heimasíðu Selfyssinga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert