Breiðablik lagði færeysku meistarana

Arnþór Ari Atlason skoraði tvö mörk fyrir Breiðablik gegn Víkingi …
Arnþór Ari Atlason skoraði tvö mörk fyrir Breiðablik gegn Víkingi frá Götu í kvöld. mbl.is/Golli

Karlalið Breiðabliks í knattspyrnu lagði færeyska liðið Víking frá Götu, sem er ríkjandi Færeyjameistari, 4:2, í æfingaleik í Fífunni í kvöld. 

Arnþór Ari Atlason og króatíski framherjinn Hrvoje Tokic, sem gekk til liðs við Breiðablik frá Víkingi Ólafsvík í janúar síðastliðnum, skoruðu tvö mörk hvor fyrir Breiðablik í leiknum.

Það er skammt stórra högga á milli hjá Breiðabliki, en liðið mætir Stjörnunni í fyrstu umferð riðlakeppninnar í Lengjubikarnum í hádeginu á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert