Þrenna hjá Jeppanum

Jeppe Hansen skoraði þrennu í kvöld.
Jeppe Hansen skoraði þrennu í kvöld. Ljósmynd/keflavik.is

Daninn Jeppe Hansen skoraði þrennu í 5:0 sigri Keflavíkur á Gróttu í 1. umferð Lengjubikarsins í knattspyrnu í Reykjaneshöllinni í kvöld. 

Hansen skoraði þrjú fyrstu mörk leiksins, áður en Anton Freyr Hauksson og Frans Elvarsson bættu við á síðasta korterinu. 

Hansen kom til Keflavíkur frá KR eftir síðasta sumar, eftir að hafa leikið með Stjörnunni við góðan orðstír. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert