Víkingur þéttir raðirnar fyrir sumarið

Milos Milojevic, þjálfari Víkings Reykjavíkur, hefur fengið til liðs við …
Milos Milojevic, þjálfari Víkings Reykjavíkur, hefur fengið til liðs við sig tvo leikmenn. Eggert Jóhannesson

Víkingur Reykjavíkur sem leikur í efstu deild karla í knattspyrnu hefur tryggt sér þjónustu tveggja leikmanna fyrir komandi átök. Annars vegar hefur serbneski miðjumaðurinn Milos Ozegovic samið við Fossvogsfélagið og hins vegar belgíski sóknartengiliðurinn Muhammed Mert. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Víkings í dag.

Milos Ozegovic gengur til liðs við Víking frá serbneska félaginu Radnicki Pirot. Muhammed Mert er aftur á móti uppalinn hjá belgíska félaginu Genk, en hann hefur þar að auki leikið fyrir hollensku félögin Fortuna Sittard og NEC Nijmegen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert