Ármann tryggði Þór sigur

Ármann Pétur Ævarsson skoraði sigurmark Þórs.
Ármann Pétur Ævarsson skoraði sigurmark Þórs. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Þór sigraði HK, 2:1, í fyrstu umferð Lengjubikars karla í knattspyrnu en liðin mættust í Boganum á Akureyri í gærkvöld.

Jóhann Helgi Hannesson kom Þór yfir snemma leiks en Ágúst Freyr Hallsson jafnaði fyrir HK í byrjun síðari hálfleiks. Ármann Pétur Ævarsson skoraði sigurmark Þórsara úr vítaspyrnu rétt fyrir leikslok.

Liðin eru í 3. riðli A-deildar en þar vann Valur sigur á ÍR, 5:2, á föstudagskvöldið og ÍA vann Víking frá Ólafsvík, 3:2, í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert