Viðar Ari á reynslu til Noregs

Viðar Ari Jónsson í leik með íslenska U21 árs landsliðinu …
Viðar Ari Jónsson í leik með íslenska U21 árs landsliðinu í haust. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Viðar Ari Jónsson, leikmaður Fjölnis í knattspyrnu, er á leið til norska úrvalsdeildarliðsins Brann á reynslu. 

Viðar Ari er 22 ára gamall og vakti verðskuldaða athygli með liði Fjölnis í fyrra. Hann var kallaður upp í íslenska landsliðshópinn í síðasta mánuði þar sem hann fór bæði til Kína og Las Vegas. Í þeim verkefnum tók hann þátt í tveimur leikjum.

Viðar mun dvelja við æfingar hjá Brann dagana 28. febrúar til 5. mars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert